Jæja ég get eiginlega ekki annað en bloggað þar sem það kom sérstakt request í kommenti hérna á síðustu færslu (þó hún sé orðin tveggja
mánaða gömul (held þetta sé bara í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að blogga sem það líður svona langt á milli færslna). Ég veit samt alveg af hverju ég er hætt að blogga... tjáningsþörf minni er algjörlega fullnægt á facebook. Þessi eina litla setning sem kemst fyrir í statusinum er bara golden - mín eigin litla þjóðarsál!

Það er örugglega heill hellingur að frétta af mér þó mér finnist nú flest allt vera bara same old same old þannig að ég skal reyna að koma með eitthvað sniðugt handa ykkur hérna:
*Ég gaf Garpi flakkara í afmælisgjöf (maður á alltaf að vera svona sniðugur og gefa gjafir sem maður getur sjálfur notað

) og við erum búin að nýta hann veeel síðan í lok apríl! Kannski þess vegna sem ég blogga aldrei lengur - er svo upptekin við að horfa á þessa blessuðu þætti sem við erum búin að hlaða inn á tækið! Málið er að við kunnum ekki að downloada (lúðar I know) og höfum verið eitthvað svo busy síðasta eina og hálfa árið (það gerðist eitthvað í febrúar 2008 sem gerði það að verkum að við höfum engan tíma fyrir neitt lengur

) þannig að við vorum dottin út úr ööööllum þáttum. EN núna erum við að vinna í þessum málum og það gengur vel! Við erum búin með alla despó þætti sem eru komnir út (áttum eftir 2 seríur) og ég er næstum því búin með allar One Tree Hill seríurnar (á einhverja örfáa þætti eftir sem voru ekki komnir út þegar Ásta var svo góð að fylla á tryllitækið fyrir mig). Svo erum við líka loksins loksin byrjuð á Greys (vorum einu lúðarnir á Íslandi sem voru ekki búnir að sjá neitt af þessum þáttum) þannig að við erum óðum að verða meira kúl í augum Íslendinga um allan heim! aha

við erum bara á seríu 2 þannig að það eru nokkrir á þessari mynd sem ég kannast ekki við
*Það vita allir að lífið gengur sinn vanagang þegar ég held áfram að grenja yfir Extreme Makeover Home Edition!

Ef ég ákveð einhvern daginn að gefa verkfræðina upp á bátinn og gerast í staðinn leikari mun ég draga fram EMHE í hvert skipti sem ég þarf að gráta "on-cue"
Af öllu liðinu verð ég að segja að Ty er minnst í uppáhaldi hjá mér - of ýktur og of gelaður
*Viljiði meira um sjónvarpsþætti? So you think you can dance er að byrja aftur eftir minna en
viku!!! úff can't wait! Fyrir þá sem vilja smá upphitun þá mæli ég með þessu hérna: http://www.youtube.com/watch?v=9u2XZV5m6yo án efa flottasti og magnaðasti dans sem dansaður hefur verið og við eitt flottasta lag sem til er! og in case you were wondering þá ójá get ég líka alveg grátið yfir SYTYCD...


Bjútífúl!
Þó svo að þetta hafi verið soldið sjónvarps-miðuð færsla þá verð ég að viðurkenna að það var ágætt að blogga aftur - gæti bara jafnvel gert þetta að reglulegu "thing"-i í sumar þar sem ég á ennþá nokkrar sögur í pokahorninu handa ykkur! So: stay tuned!!
-Ingunn